Agatha
13.11.2006 19:31:39 / agatha

Ekki af baki dottin..........

En tæpt hefur það verið þó. Er að halda fyrsta markmið mitt sem er ekki hætta !!!!!!!!  Heilsuleysi og annir hafa tafið fyrir undanfarið en náði samt 10 kg. markinu loksins eftir 12 vikur :):):) Ætlaði að vera búin aðeins fyrr en svona er lífið í baráttunni stundum.

Þarf núna að setja mér markmið og læt hér með fjúka

1.  Finna til nesti á kvöldin, finn að erfiðara er að vakna á morgnana núna og fara að elda svo betra að græja þetta kvöldið áður.

2. fimm vigtanir fram að jólum svo ég set stefnuna á fjögur kíló í viðbót fyrir jól, fimm væri frábært en betra að vera raunhæfur.

Hef haldið áfram ístilraunum og bakstri á lummum bara gott.  Þarf núna að einbeita mér að því að elda grænmeti á nýjan og fjölbreyttan hátt.

baráttukveðjur Agatha


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 20:31:26 / agatha

vika 7 og árangur

´Jæja áfram gengur vel, samt erfið vika með matarboðum, afmælum og saumaklúbb, fór ekki 100 % eftir prógramminu en engar alvarlegar syndir og reyndi að áætla hitaeiningar og sleppa ávöxtum á móti og var ströng í grænmetismagninu og vatninu.  Finn núna þessa aukaverkanir á að vera að grennast, kalt á puttunum og hringirnir hringla á fingrunum en það er bara gaman sérlega þar sem buxurnar eru farnar að hringla líka :lol::lol::lol:


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 20:33:13 / agatha

Árangur vikur 6

Bara flott, 1,2 fuku út í veður og vind þrátt fyrir hliðarspor, fæ kannski að gjalda þess næst en vonandi ekki. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 13:50:20 / agatha

vika 6

Jæja búin að vera dugleg dugleg, tók svo skipulagt hliðarspor í gær og vaknaði svo í morgun alveg í gírnum á beinu brautinni. 

Fyndinn þessi hádegismatur um helgar, mér finnst gott að lúra lengi um helgar og oftar en ekki borða ég þá morgunmatinn og hádegismatinn saman. Hvílíkt magn en margt skemmtilegt´hægt að gera við ost og egg, spara þann skammt með helgarnar í huga. French toast með sultu og camenbert, steikt egg í brauði með steiktum tómötum, eggjakaka með osti allt nammi nammi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 21:09:18 / agatha

Uppfærður ticker

Eitthvað hafði skolast til og hann var ekki réttur um að gera að hafa allt rétt núna þegar ég finn að fyrstu þreytumerkin sjást, það er að segja að ég hef aldrei verið dugleg aðskipuleggja matseðil heimilisins en tek mig svo á og reyni að hafa þetta í lagi en er að þreytast núna á að vera alltaf búin að hugsa fyrirfram og skipuleggja en gott að vita af því og geta tekið í hnakkadrambið á sjálfri mér áður en í óefni fer,

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 23:49:17 / agatha

Flott vika

Jæja bara kát, að baki glæsileg vika, engar veislur og engin hliðarspor, bara danskt í öll mál alla daga enda skilar það sér í árngri, 1,4 af núna og þar með komin fyrstu 5:) Verðlaunin voru að taka í notkun dásamlegt krem sem beið í sellófani og öllu á í baðherbergishillu, nú er það opnað og hjálpar til við að gera mig sætari með hverjum deginum sem líður.

Var líka dugleg í aukamarkmiðunum og prófaði fullt af mat sem ekki hefur verið áður á borðum eða allavega sjaldan, t.d. engiferrót, vá hún er sterk þarf bara smá bút, eggaldin, kúrbít, bæði svona allt í lagi en ekkert æði. Bakaði pönnukökur í hádegismat á sunnudag og borðaði með sultu og osti, 1 egg, 50 gr létt AB mjólk, 15 gr hveiti, tæp tsk lyftiduft, smá salt, vanilludropa og sætuefni algert æði.  tók líka reyktan lax í nesti og prófaði makríl í dós, laxinn er ljúffengur en markílinn bara lala.

Well, háttatími eigið góða viku með kveðju úr baráttunni ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 23:56:22 / agatha

nýr matur ? og árangur í grömmum

Jæja ein vikan enn og áfram góður árangur, ekki eins og ég var búin að vona en bara gott, 800 gr var samt svo óhóflega bjartsýn að var að gera ráð fyrir og vona þá tölu tvöfalda en það er nú bara uppskrift a´vonbrigði að vera að gera sér óraunhæfar væntingar.  Svo eigum við ekki bara að segja að markmiðið í þessari vkur séu önnur 800 gr. og þá verða komin 5 kíló 8):D:lol:

Annars er aukamarkmiðí þessari viku að prófa nýja uppskrift og nýjan mat svo þið megið alveg skella á mig góðum hugmyndum að einhverju spennandi.

Var áðan að búa til krap úr bláberjum og sýrðum rjóma, eitthvað skrýtin ber og ekki nógu gott.  En í gær gerði ég krem úr kakói og borðaði með banana það er algert nammi namm, næst langar mig að setja smá kaffiduft í er það ekki í lagi ?

baráttukveðja  :o


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 19:36:46 / agatha

dugleg og ekki dugleg ;)

Ég virðist nú ekki ætla að verða duglegasti bloggarinn á svæðinu en það er bara í lagi því ég er svo dugleg í öðru, búin að sitja heilu partýin, afmælin og matarboðin án þess að leiðast í freistni.........og hef það bara fínt.  Ég finn strax þessa dásamlegu tilfinningu sem maður fær þegar maður byrjar að léttast, hringirnir rýmri buxnastrengurinn rýmri og maður er svo ánægður með sjálfan sig :) :) :).  Næsta verkefni verður að halda þessari tilfinningu og ánægjunni með hana og halda út...... og ég skal.

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 19:14:26 / agatha

Henda viktinni

Ég á gamlan viktræfil, hún sýndi í morgun 117 kg heheh hvílíkt gargan, því DDV viktin sýnir 125,4 held hún ætti bara heima á haugunum.  Samt hef ég taugar til hennar greyið og kannski mest því hún hefur eiginlega rekið mig í DDV aftur, því hún sýnir ekki nema 125 kg,  svo ef maður færi yfir það væri maður kannski bara 1 kg. eða 3 kg.,  8|  Á hún ekki bara að fara á haugana:$ eða hvað ?  Manni er allavega ráðlagt að vera ekkert að vikta sig heima og ég held bara að það sé töluvert vit í því, því ég var bara ekkert kát með þetta eina kg sem fór í vikunni því garmurinn sýndi meira.  En nóg volæði með það 1 kg er flott, þamba bara vatn og held ótrauð áfram. 

Er líka með þennan fína þorsk í ofninum, lagði hann í eina dós af söxuðum tómötum og oregano og lauk yfir, skellti svo hálfum poka af frosnu grænmeti í annað fat við hliðina á.  Farin að borða eigið góða viku 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 23:40:46 / agatha

Verslunarferð

Vá fyndið sem ég lenti í í dag, var í Hagkaup að kíkja á föt, sá bol sem mér leist á á mikið niðursettu verði, svona fleginn og pæjulegan. Ok  inn í klefann og í bolinn, hann var flottur en samt eitthvað svo skrýtinn í laginu. Þröngar ermar og rosalega vítt hálsmál, brjósthaldarinn stóð alltaf fram undan. Ok var ekki að fíla hann og skellti á herðatré og vitiði hvað hann var nr. 16 á líklega að vera svona víður og pokandi með svona stroffi að neðan, hehehehe ekki svona straujaður allsstaðar eins og á mér sem er venjulega í 20-22. Munaði samt minnstu að ég tæki hann bara til að eiga eitthvað í 16 !:lol: Nei það er ekki strax.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 23:42:29 / agatha

kölkuð

Gleymdi því sem ég ætlaði aðalega aðsegja áðan.  Takk takk fyrir kveðjurnar sem þið komuð með athugasemdir.

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 23:26:30 / agatha

Átaksbloggarar

Ég var akki viss um að ég myndi skrá mig hjá átaksbloggurum, allt of feimin en það er bæði fróðlegt og styrkjandi að lesa frá öðrum svo ég vildi leggja mitt af mörkum fyrir nú utan að losa mig við allt sem veltur um í hausnum á mér.  Kannski tekst að koma smá skipulagi á það allt og hjálpa mér við það sem hefur verið vandamál að gera kröfur fyrir mig og vita hvað ég vil.  Mér fannst það bara frábær skilaboð hjá DDV stjórnandanum að segja við verðum stundum bara að vera svolítið sjálfelskar og gera það sem er rétt fyrir okkur. Svo nú geri ég það sem er gott fyrir mig og mína heilsu með góðri samvisku.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 22:47:59 / agatha

Vika 1. búin

Ein vika búin og þetta var bara ekkert mál, var samt í boðum 3 kvöld um helgina, borðaði grænmetið fyrir eða eftir og svo skynsamlega af því sem í boði var og sleppti áfenginu, nóg tími fyrir það seinna.  Reyndar var ég síðast farin að segja já takk við stöku rauðvínsglasi og sleppti þá ávexti á móti .  Sé til hvernig ég hef þetta núna, reyni bara að takast á við lítil tímabil í einu.  Fram eftir viku hugsaði ég bara einn dag í einu, en fann svo að ég var alveg tilbúin og fór og verslaði, hrúgur og skafla af grænmeti og ávöxtum, sýrðan rjóma, létt AB mjólk, lifur og allar græjur.  Reyndar hentar minni fjölskyldu vel að hafa matarvenjurnar í föstum skorðum og aðrir fjölskyldumeðlimir eru ´´anægðir að það sé reglulega matur á borðum en ekki junk, allir borða sama og ég en bæta við sósum og grjónum og pasta og kartöflum að vild. Bara gott mál.

Allavega niðurstaða vikunnar eru 2,4 á bak og burt. Flott hjá  mér. J  J  


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 19:14:29 / agatha

Bara komini í gang :)

Ég held bara svei mér þá að þetta sé að koma, allt í lagi dagur í gær og fínn í dag, á eftir svo ávexti til að sukka með í kvöld, girnilegar gulrætur í ofninum og steik á grillinu. Var hreinlega búin að gleyma hvað þetta er mikill matur, morgunmaturinn í morgun, var sko nóg til að gera mig sprengsadda, ab-létt, melóna og brauð með sultu namm, :).  Þarf bara að taka mig á í vatninu það var alveg dottið út úr rútínunni.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 07:24:15 / agatha

Föt

Var áðan eitthvað að raða til í skápnum mínum.  Tók út úr honum föt sem eru bara notuð á sumrin.  Hugsaði sem svo, þessi verða of stór næsta sumar, ein bjartsýn, er að ekki rétta hugarfarið.  Um leið sagði nýtnin í mér ætli það sé ekki hreinlega hægt að sauma betri flíkurnar aftur, setja á þær almennilegt snið og endurnýta efnin ? Spái í það

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2